Fatlaðir Þátttakendur

Upplýsingar fyrir fatlaða þátttakendur

    SKRÁNING

    Skráning fer fram hér á vefnum og er bara um almenna skráningu að ræða en hakar í að viðkomandi sé í hjólastól og fær þá nánari upplýsingar þegar nær dregur hlaupi. Nánari upplýsingar um skráningu má finna hér.

    Fylgdarmenn

    Fatlaðir þátttakendur í Miðnæturhlaupi Suzuki geta haft með sér einn fylgdarmann í hlaupinu sér að kostnaðarlausu ef þau óska þess. Fylgdarmaður fær merkingu við afhendingu gagna sem sýnir að hann megi vera á hlaupabrautinni en hann fær ekki tíma eða önnur gögn hlaupsins.

    HLAUPABRAUTIN

    Allir þátttakendur eru á eigin ábyrgð. Hlaupabrautin er ekki alveg lokuð umferð og því mikilvægt að sýna aðgát. Auk þess er vakin athygli á því að hlaupabrautin getur verið á köflum erfið yfirferðar fyrir hjólastóla. Má þar nefna hraðahindranir, gróft undirlag og misfellur sem geta verið varasamar. Af öryggisástæðum þurfa þátttakendur í hjólastólum eða með önnur hjálpartæki að vera aftast í upphafi hlaups.

    VERÐLAUN

    Allir þátttakendur fá verðlaunapening þegar þeir koma í mark í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka og fá skráðan tíma hafi þeir tekið þátt í vegalengd með tímatöku.

    Þátttakendur í hjólastól geta ekki unnið til verðlauna fyrir fyrstu þrjú sætin eða aldursflokkaverðlaun í hlaupinu.

Styrktaraðilar

  • Suzuki
  • 66 norður
  • ÍTR
  • Gatorade