Skráning

Miðnæturhlaup Suzuki fer fram 25. júní 2026

Skráning í Miðnæturhlaup Suzuki 2026 er opin og skráning fyrir Miðnæturhlaup Suzuki 2027 hefst daginn eftir hlaup 2026.

Skráningu lýkur á netinu 60 mínútum fyrir fyrstu ræsingu hlaupsins en þátttakendur þurfa að gefa sér nægan tíma til að ná í hlaupagögnin sín.

Áhugasömum stendur til boða að skrá sig (og aðra) í eftirfarandi vegalengdir:

Verðskrá

Upplýsingar um verðskrá má finna hér.

    Almennur miði

    Almennur miði veitir þátttakendum rétt til að taka þátt í hlaupinu án þess þó að keppa til verðlauna og úrslit fara ekki í afrekaskrá FRÍ.

    Keppnismiði

    Keppnismiði veitir þátttakendum möguleika á að vinna til verðlauna og fá úrslitin skráð í afrekaskrá FRÍ. Hægt er að nýta lokatíma til að skrá sig í önnur keppnishlaup erlendis.

    Innifalið í almennum miða

    • Þátttaka í Miðnæturhlaupinu 2026
    • Hlaupanúmer
    • Tímaflaga
    • Þjónustu og drykkir á braut
    • Medalíu að loknu hlaupi
    • Sundlaugarpartý í Laugardalslaug (sýna þarf hlaupanúmer)
    • Lögmælda braut samkvæmt mælingarstöðlum AIMS

    Innifalið í keppnis miða

    • Þátttaka í Miðnæturhlaupinu 2026
    • Hlaupanúmer
    • Tímaflaga
    • Þjónustu og drykkir á braut
    • Medalíu að loknu hlaupi
    • Sundlaugarpartý í Laugardalslaug (sýna þarf hlaupanúmer)
    • Lögmælda braut samkvæmt mælingarstöðlum AIMS
    • Umsóknargjald um FRÍ vottun
    • Skráningar- og umsýslugjald í afrekaskrá FRÍ
    • Verðlaun til fyrstu þriggja hlaupara í hverri vegalengd og fyrsta hlaupara í hverjum aldursflokki

    Fatlaðir Þátttakendur

    Fatlaðir þátttakendur í Miðnæturhlaupi Suzuki geta óskað eftir því að hafa með sér einn fylgdarmann þeim að kostnaðarlausu. Fylgdarmaður fær merkingu við afhendingu gagna sem veitir honum aðgang að hlaupabrautinni. Hins vegar fær fylgdarmaður hvorki skráðan hlaupatíma né önnur gögn tengd hlaupinu. Í skráningarferlinu er hægt að tilgreina hvort viðkomandi noti hjólastól. Þeir sem haka við það munu fá nánari upplýsingar þegar nær dregur hlaupi. Frekari upplýsingar um skráningarferlið má finna hér.

    Greiðsluleiðir/staðfesting á skráningu

    Í skráningarferlinu er hægt að velja um að greiða þátttökugjaldið með öllum helstu debet- og kreditkortum og/eða gjafabréfi Íþróttabandalags Reykjavíkur. Að lokinni skráningu fær viðkomandi senda kvittun í tölvupósti skráningunni til staðfestingar. Berist ekki kvittun hefur skráning ekki gengið í gegn.

    Breyting á vegalengd

    Þátttakendur geta breytt um vegalengd inni á mínum síðum á meðan netskráning er opin. Eftir það verður hægt að breyta um vegalengd á skráningarhátíðinni. Greiða þarf fyrir mismun á verði vegalengda ef farið er í dýrari vegalengd samkvæmt verðskrá sem er í gildi á þeim tíma sem breytingin er gerð. Ekkert sérstakt breytingagjald er tekið til viðbótar fyrir þessa breytingu. Ekki er hægt að breyta um vegalengd eftir að hlaupið er hafið.

    Nafnabreyting/breytingagjald

    Hægt er að gera nafnabreytingu á skráningu á mínum síðum. Nýr eigandi skráningarinnar fær staðfestingu á skráningu í tölvupósti ásamt aðgangi að mínum síðum. Athugið að „mínar síður" eru aðeins opnar á meðan rafræn skráning er opin. Eftir að rafrænni skráningu lýkur er ekki hægt að gera nafnabreytingu.

    Afslættir fyrir hópa og fyrirtæki

    Hlaupahópar og fyrirtæki sem vilja skrá 10 eða fleiri þátttakendur fá sérstakan hópafslátt.

    Áhugasamir hafa samband við info@marathon.is

Styrktaraðilar

  • Suzuki
  • 66 norður
  • Gatorade
  • Holdur Car Rental Iceland